Anmeldelse i Le Monde de la Musique, marts 2005, af "Livets Bro", CD med moderne dansk vokalmusik. Aarhus Universitetskor, Carsten Seyer-Hansen.

"...Interessant forekommer også "Fimm visur um nottina" af den unge Stefan Arason (født 1978). Modstillingen af forskellige universer ligger her ikke i tonesproget men i formen, ikke mellem hver akkord men mellem hver af de fem satser. Den sidste afgiver en overraskende poesi. De enstemmige kor, helt nøgne, nærmer sig det gregorianske. Med mellemrum akkompagneres de af, hvad der lader til at være den æteriske lyd af et Ondes Martenot. Dette drømmende instrument iklæder sig da en kosmisk spiritualitet som forynger og forklarer de enstemmige gregorianske kors glød. Den kristne gud synes forynget, befriet for sit lange hvide skæg. Fra sin gamle himmel lader han til endelig at begive sig afsted mod kosmos."

(Anmeldt af Jacques Amblard - 4 stjerner)

Morgunblaðið 18. febrúar, 2005:

"Úr draumkenndri tímavél"

"...STEFÁN Arason (f. 1978) vakti verðskuldaða athygli á Myrkum músíkdögum og UNM 2002 með verki sínu "10-11" fyrir strengi og píanó. Hann stundaði framhaldsnám í tónsmíðum við Árósaháskóla og lauk þaðan diplóm-prófi í fyrra. Á þessum nýja geisladiski frá metnaðarfulla danska hljómplötuforlaginu Danacord á Stefán um 12 mín. langt verk fyrir kór a cappella frá 2004 við ljóð Sigurðar Óskars Pálssonar er mun aðaltilefni þessarar umfjöllunar."

"...Sex verk eftir jafnmarga höfunda eru á þessum diski, fimm þeirra dönsk, og spanna síðustu 20 ár. Að mínu viti skáru tvö verk sig ótvírætt úr. Hið fyrra var Vintersalme (1984; 7:52) eftir Per Nørgård, sem skv. bæklingi mun þó að einhverju leyti útsett af kórstjórnandanum Gunnar Eriksson. Hitt var Fimm vísur um nóttina eftir Stefán Arason. Sérstaklega nr. 3 eftir Stefán (Vetrarnóttin) þótti mér sláandi fyrir bæði frumleika og fegurðar sakir. Annað eins heillandi og óþvingað jafnvægi milli e.k. síðmiðaldastíls og módernisma man ég varla eftir að hafa upplifað, en að vísu var líka hreint frábærlega flutt. Og svo hið næsta, nr. 4 (Vornóttin), þar sem byggt var á fimmradda endurreisnar"balet" Morleys, Now is the month of maying, á óviðjafnanlega draumkenndu tímavélarferðalagi fram og aftur um fjórar aldir.

Þótt eftir væru fjögur kórverk, sum mjög góð, skákuðu þessir tveir þættir að mínu viti þeim öllum með tölu."

Ríkarður Ö. Pálsson

Morgunblaðið 10. september, 2002:
"10-11, kortérslangt fimmþætt verk Stefáns Arasonar (f. 1978) frá í fyrravor fyrir strengi (5 f, 4 v, 3 s, 2 kb) og píanó, kvað þegar orðið eitt tíðfluttasta íslenzkt nútímaverk seinni ára. Slíkt lofar aðvitað góðu um framhaldslíf, enda kom verkið ef nokkuð enn glæsilegra út þetta kvöld en í fyrri upplifun undirritaðs á Myrkum músíkdögum í febrúar s.l. Tónöl undirstaða þess kom skýrust fram af líðandi melankólsku lag- og hljómaferli píanósins úr höndum Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur (að frátöldum taktföstum "steðjaslætti" III. þáttar efst í diskanti) og hefur það "afturhald" varla heldur spillt fyrir almennri meðtöku. Ef afturhald skyldi kalla - því þvert á móti kom verkið fyrir sem eitt frumlegasta, hugvitssamasta og persónulegasta framlag kvöldsins."

Ríkharður Örn Pálsson