Megindleg sálfræði · Rannsóknir · Kannanir
Traustar mælingar. Skýr svör. Ákvarðanir sem standast skoðun.
Við erum sérfræðingar í megindlegri sálfræði og aðstoðum fyrirtæki, stofnanir og samtök við að hanna kannanir, safna gögnum af kostgæfni og greina þau þannig að niðurstöðurnar séu réttar, skiljanlegar og nothæfar.
Þjónusta
Allt frá fyrstu spurningu að lokaskýrslu
Hvort sem verkefnið er ein könnun eða rannsóknaráætlun til margra ára sjáum við um alla keðjuna, eða þá hlekki sem vantar.
01
Hönnun spurningakannana
Spurningar sem mæla það sem þær eiga að mæla. Kvarðar, svarmöguleikar, röðun og orðalag byggt á próffræði og forprófun.
02
Framkvæmd kannana
Úrtaksgerð, netkannanir, símakannanir og panelar. Eftirlit með svörun og gagnagæðum frá fyrsta degi til lokunar.
03
Tölfræðileg greining
Frá lýsandi tölfræði að þáttagreiningu, líkanagerð og svarferlalíkönum. Rétt aðferð fyrir rétt gögn, og ekkert umfram það.
04
Mælitæki og próffræði
Þýðing, staðfærsla og mat á áreiðanleika og réttmæti mælitækja. Þróun nýrra kvarða þegar þeir sem til eru duga ekki.
05
Skýrslur og mælaborð
Skýrslur sem fólk les og mælaborð sem fólk notar. Myndræn framsetning sem sýnir niðurstöðurnar eins og þær eru.
06
Ráðgjöf og fræðsla
Aðferðafræðileg rýni, gagnastefna og námskeið fyrir teymi sem vilja standa sjálf að rannsóknum sínum.
Af hverju megindleg sálfræði
Mælingar á fólki eru ekki eins og mælingar á hlutum
Viðhorf, líðan, hegðun og persónuleiki sjást ekki með berum augum. Megindleg sálfræði er sú fræðigrein sem fæst við að mæla þau samt, og gera það þannig að niðurstaðan standist.
- Rétt mæling framar stórri mælingu. Illa orðuð spurning gefur rangt svar hjá tíu þúsund manns jafnt og hjá tíu. Við leggjum vinnuna í spurningarnar áður en þær fara út.
- Aðferðin ræðst af gögnunum. Marktektarpróf á hentiúrtaki, hlutfallstölur án óvissu eða meðaltöl á raðkvarða eru algeng mistök. Við forðumst þau, og segjum frá því.
- Óvissa er hluti af niðurstöðu. Við sýnum hvað gögnin segja og hvað þau segja ekki. Það gerir ákvarðanir betri, ekki verri.
- Gagnsæi frá upphafi til enda. Greiningarkóði, skjölun og endurgeranlegar skýrslur. Verkkaupi á að geta rakið hverja tölu til uppruna síns.
Ferlið
Fjögur skref, engin óvænt uppákoma
Skilgreining
Við byrjum á spurningunni sem á að svara, ekki spurningalistanum. Hvaða ákvörðun styðja niðurstöðurnar og hvað þarf að vera rétt?
Hönnun
Mælitæki, úrtak og greiningaráætlun eru ákveðin saman áður en gagnasöfnun hefst. Forprófun leiðréttir það sem lítur vel út á blaði en virkar ekki.
Framkvæmd
Gagnasöfnun með stöðugu eftirliti með svarhlutfalli, brottfalli og gæðum. Vandamál eru leyst á meðan könnunin er opin, ekki eftir á.
Greining og skil
Greining samkvæmt áætlun, skýrsla með skýrum niðurstöðum og fyrirvörum, kynning fyrir þá sem taka ákvarðanirnar.
Sýnishorn
Opin verk sem þú getur skoðað núna
Hluti þess sem við smíðum er opinn öllum. Það gefur betri mynd af vinnubrögðunum en nokkur lýsing.
Gagnaskrín
Ein gátt að opnum rannsóknar- og tölfræðigögnum á Íslandi, uppskorin sjálfvirkt úr 19 gagnalindum.
arason.net/gagnaskrinMatstækjaskrá
Aðgengileg og leitarbær skrá yfir sálfræðileg matstæki sem notuð eru á Íslandi.
arason.net/matstaekjaskraRannsóknaskrá Menntavísindasviðs
Leitarbær skrá yfir rannsóknir Menntavísindasviðs HÍ, uppskorin sjálfvirkt.
arason.net/mvsrannsoknirErtu með verkefni í huga?
Segðu okkur frá spurningunni sem þú vilt fá svar við. Við segjum þér hreinskilnislega hvort og hvernig hægt er að svara henni.