ARASON
  • Þjónusta
  • Verkefni
  • Um okkur
  • Hafa samband

Um okkur

Sérfræðingar í að mæla það sem erfitt er að mæla

Arason er ráðgjafarstofa á sviði megindlegrar sálfræði. Við sameinum fræðilega þekkingu á mælingum á fólki og hagnýta reynslu af því að reka kannanir og rannsóknir frá upphafi til enda.

Bakgrunnur

Reynsla úr stórum könnunum, þekking úr sálfræðinni

Stofan byggir á rúmlega tíu ára reynslu af hönnun og framkvæmd stórra, fjölþjóðlegra kannana ásamt sérþekkingu í próffræði, tölfræði og rannsóknaraðferðum sálfræðinnar. Sú blanda skiptir máli: sá sem hefur staðið vaktina í gagnasöfnun veit hvað getur farið úrskeiðis, og sá sem þekkir próffræðina veit hvers vegna spurning sem lítur saklaus út gefur skekkt svar.

Við vinnum með opnum og endurgeranlegum verkfærum, einkum R og Quarto. Verkkaupi fær ekki bara niðurstöður heldur líka leiðina að þeim: greiningarkóða, skjölun og skýrslur sem er hægt að keyra aftur þegar ný gögn berast.

Stofnandi og ábyrgðarmaður er Unnar Geirdal Arason. Eftir þörfum hvers verkefnis er kallað til samstarfsfólk með sérþekkingu á viðkomandi sviði, til dæmis í eigindlegum aðferðum, hugbúnaðargerð eða tilteknum fagsviðum.

Meginreglur

Það sem við stöndum fast á

Segjum hvað gögnin þola

Hentiúrtak fær ekki marktektarpróf og lítill hópur fær ekki tveggja aukastafa prósentur. Við gerum grein fyrir takmörkunum í hverri skýrslu, á skiljanlegu máli.

Sýnum dreifingu, ekki bara meðaltal

Meðaltal á fimm punkta kvarða felur meira en það sýnir. Við sýnum hvernig svörin dreifast, með aðskildum hlutlausum hópi þar sem það á við.

Allt er endurgeranlegt

Hver tala í skýrslu er rekjanleg til gagna og kóða. Ný umferð könnunar á að vera keyrsla, ekki nýtt verkefni.

Spurningin fyrst, tólið svo

Við veljum aðferðina eftir spurningunni sem á að svara, ekki eftir því sem er tískulegast eða þægilegast.

Hreinskilni gagnvart verkkaupa

Ef könnun mun ekki svara spurningunni segjum við það áður en hún fer af stað. Það sparar peninga og trúverðugleika.

Opið þar sem hægt er

Við smíðum opin tól og sýnishorn sem allir geta skoðað. Það heldur okkur við efnið og sýnir hvernig við vinnum.

Verkfæri

Tæknin sem við notum

R og Quarto Greining, myndgerð og skýrslur í einu endurgeranlegu ferli.

Shiny og vefforrit Gagnvirkar kannanir, mælaborð og ritlar fyrir verkkaupa.

Opin gögn Uppskera úr Hagstofu, GAGNÍS, sveitarfélögum og öðrum opinberum lindum.

Viltu vita meira?

Við tökum stutt samtal um verkefnið þitt og segjum hvað við teljum skynsamlegt.

Hafa samband

ARASON
Rannsóknir, kannanir og greining á grunni megindlegrar sálfræði. Reykjavík.

 

Þjónusta Verkefni Um okkur Hafa samband